900 4021.jpg

Ljósmyndari: GKS | Staður: Mælifellsdalur 3 | Bætt í albúm: 23.7.2007

Athugasemdir

1 Smámynd: Akstursíþróttakappinn Daníel Sigurðarson

Þetta endalausa ryk var ótrúlegt - og vegurinn svakalega háll fyrir vikið. Ég er enn að moka svörtum kögglum úr nefinu á mér eftir helgina.

Akstursíþróttakappinn Daníel Sigurðarson, 23.7.2007 kl. 21:44

2 Smámynd: Mótormynd

Hvernig getur vegurinn verið háll þegar hann er svona þurr? Var hann ekki háll/leirkenndur í bleytunni í fyrra? Ég veit ekkert... ;)

Mótormynd, 24.7.2007 kl. 00:12

3 Smámynd: Akstursíþróttakappinn Daníel Sigurðarson

Sæll.

Ég veit raunar ekki svarið við spurningunni þinni heldur:)  Það virðist nást mest grip á flestum köflum mælifellsdals í raka - ekki rigningu. Leirin virðist þurfa að mýkjast aðeins til að dekkin nái ofan í hann - annars rennur maður bara á fína sallanum ofan á leirnum.

Við reyndum tvær mismunandi dekkjagerðir og kom engin haldbær niðurstaða út úr því. Við töldum okkur hafa gert stór mistök með dekkjaval á fyrstu leið með að telja að dalurinn væri blautur - en það fossrigndi á Sauðárkrók. Svo var skraufaþurrt á dalnum - og við á mjúku og opnu mynstri - sem ætti samkvæmt bókinni að vera afleitur kostur. En það kom bara þokkalega út - þó að dekkin hafi klárast hratt þá vorum við með gott grip. Svo skiptum við yfir á harðara og lokaðra mynstur - en þá varð bíllinn lausari á veginum - en vissulega stöðugri enda miklu minni hiti í harðari dekkjum.

Mælifellsdalur er bara algerlega spes - óútreiknanlegur með öllu :)

Akstursíþróttakappinn Daníel Sigurðarson, 24.7.2007 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og nítján?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband