Daníel og Ásta í feikna formi

regs3Daníel og Ásta Sigurðarbörn eru í 9. sæti að loknum þremur sérleiðum í Bulldog rallinu sem fram fer í Wales í dag. Þau náðu 8. besta tíma á sérleið 2 sem hlýtur að teljast frábært. Þetta er mikill sekúnduslagur en þau eru 3,9 sek frá 8. sætinu og 13,9 sek frá 11. sæti.

Í Mitsubishi Evo Challenge eru þau í 4. sæti, 3,9 sek á eftir Nik Elsmore.

Andrew Burton og Marcus Dodd berjast um sigurinn í rallinu og skilur aðeins 0,1 sekúnda þá að eftir þrjár sérleiðir. Daníel er 2:29,4 mín á eftir Burton.

Sérleiðatímar:
1 - Dyfnant - 9:32,2 - (14. besti, 14. sæti)
2 - Dyfi Main 1 - 15:20,8 - (8. besti, 10. sæti)
3 - Pantperthog - 8:19,5 mín. - (10. besti, 9. sæti)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband